Innskráning

Skilmálar og tilmæli

Upplýsingar um söluaðilann

Leikfélag Vestmannaeyja
Heiðarvegur 19
900 Vestmannaeyjar
eyjabiovey@outlook.com
Hér eftir "EyjaBíó" eða "Kvikmyndahúsið".

EyjaBíó áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegund fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending á vöru

Afhending á vöru fer fram í húsakynnum EyjaBíó.


Verð á vöru

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% virðisauka eftir því sem við er á.
Smellið HÉR fyrir verðskrá.


Eftirfarandi reglur og tilmæli gilda í EyjaBíó:

  • Reykingar og neysla vímugjafa eru óheimilar inni í kvikmyndahúsinu.
  • Rafsígarettur eru ekki leyfðar í kvikmyndahúsinu.
  • Þeir sem óska eftir að reykja verða að fara út fyrir anddyri kvikmyndahússins.
  • Notkun myndavéla eða kvikmyndaupptökuvéla er óheimil án leyfis umsjónarmanna kvikmyndahússins.
  • Notkun hjólabretta, reiðhjóla og skauta er óheimil inni í kvikmyndahúsinu.
  • Óheimilt er að taka með sér gæludýr inn í kvikmyndahúsið.
  • Óheimilt er að taka með sér og neyta matar, sælgætis eða drykkja sem keyptir hafa verið utan kvikmyndahússins.
  • Ekki er heimilt að taka með sér stórar íþróttatöskur eða aðrir hlutir í yfirstærð sem hefta hreyfingar annarra á milli sætaraða og geta þannig skapað hættu ef ríma þarf sali.
  • Viðskiptavinur verður að hafa gildan bíómiða til að geta fylgst með sýningunni.
  • Miðinn gildir fyrir einn og aðeins á þá sýningu sem tekin er fram á miðanum.
  • Það er bannað að trufla aðra áhorfendur og skemma sýninguna fyrir öðrum, t.d. með notkun farsíma.
  • Það er bannað að skemma eigur kvikmyndahússins vísvitandi, t.d. með því að setja fæturna upp á sætin, nota liti og úðabrúsa á innanstokksmuni.
  • Verði gestir uppvísir að því að skemma eignir kvikmyndahússins vísvitandi – áskilur félagið sér fullan rétt til að krefja viðkomandi skaðabóta til að koma aðstöðunni í samt lag.


Aldurstakmörk á myndir

  • EyjaBíó fylgir lögum um kvikmyndaskoðun nr. 62/2006.
  • Ábyrgð og skyldur kvikmyndahúsa skv. þessum lögum má finna á vef kvikmyndaskoðunar hér að neðan, en þar kemur m.a. fram í 2. grein að sýningaraðila kvikmyndar beri skylda til að framfylgja aldurstakmörkunum á sýningar í kvikmyndahúsum.
  • Smellið HÉR fyrir nánari upplýsingar.


Starfsmenn EyjaBíó hafa rétt á eftirfarandi:

  • Að óska eftir skilríkjum þess sem kaupir bíómiðann ef myndin er bönnuð innan ákveðins aldurs eða til þess að staðfesta aldur ef um afslátt er að ræða
  • Að neita því að selja miða ef viðkomandi er undir þeim aldursmörkum sem myndin leyfir, sbr. það sem lög segja til um.
  • Að selja þeim ekki miða sem eru augljóslega ölvaðir, í vímu eða líklegir til að valda ónæði.
  • Að selja þeim ekki miða sem eru ekki nægilega vel klæddir eða ákaflega óþrifalegir og geta með því skemmt upplifun annarra gesta.
  • Að vísa þeim á dyr sem hafa truflað sýningar eða brotið reglur kvikmyndahússins án þess a endurgreiða þeim miðann. Við alvarlegustu aðstæður verður málum vísað til lögreglu.
  • Ef einhver reynir að svindla á starfsmönnum kvikmyndahússins má ógilda miðann og vísa viðkomandi úr húsinu.
  • Að neita að selja þeim miða sem hafa áður brotið reglur kvikmyndahússins eða reynt að svindla á starfsfólki þess á einhvern hátt.
  • Að leyfa hreyfihömluðu fólki í hjólastól að fylgjast með sýningum án þess að borga, ef viðkomandi situr í hjólastólnum á ákveðnum stað í salnum. Sá sem fylgir viðkomandi verður að kaupa miða.


Starfsmenn EyjaBíó mæla með eftirfarandi:

  • Farið ekki með kornabörn á bíósýningar vegna þess að hávaðinn fer illa í þau og fær þau til að gráta, en það skapar mikla truflun fyrir aðra áhorfendur.
  • Leitið samstundis aðstoðar hjá starfsfólki kvikmyndahússins ef einhverjir trufla sýninguna og spilla henni fyrir öðrum.
  • Vinsamlegast gangið snyrtilega um kvikmyndasalina og hendið umbúðum og drasli í ruslafötur.
  • Vinsamlegast mætið tímalega á sýningar til þess að ekki sé of mikil truflun og umgangur eftir að kvikmyndasýning hefst.


Viðskiptaviðmið

  • Aðgöngumiðar eru ekki endurgreiddir ef viðskiptavinur á ekki tök á að mæta á sýninguna. Í slíkum tilfellum er viðskiptavinum boðið upp á að breyta miðanum yfir á aðra sýningu, ef komið er samdægurs þ.e.a.s. áður en sýningin sem keypt hefur verið á hefst. Ef upp koma aðstæður þar sem sýning fellur niður, er viðskiptavinum sem hafa gilda miða á viðkomandi sýningu boðnir tveir nýir aðgöngumiðar á sambærilega sýningu í formi inneignarnótu.
  • Aðgöngumiðar eru ekki endurgreiddir sökum þess að viðskiptavinur telji mynd ófullnægjandi.
  • EyjaBíó lætur tölvupóstföng aldrei í hendur þriðja aðila.
  • Ekki er sent kynningarefni til þeirra sem skráð hafa sig á síðuna nema hakað sé við þartilgert hak við skráningu


Öryggi

Vefur kvikmyndahússins meðhöndlar engar kortaupplýsingar. Allar greiðslur fara í gegnum örugga síðu Valitor.


Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema lög kveði á um það.


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi má vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.